FRÉTTATILKYNNING: Landsbankinn og N1 á meðal þeirra sem bætast í ört stækkandi hóp hluthafa Eyjaganga

Vestmannaeyjum 23. mars 2026

Undirbúningur að gerð jarðganga á milli lands og Eyja hefur tekið stórt skref fram á við með innkomu nýrra, öflugra hluthafa. Landsbankinn og N1 hafa nú meðal annarra bæst í hóp þeirra sem styðja verkefnið, en allir nýir hluthafar hafa þegar greitt fyrir hlut sinn í félaginu.

Sagan úr Hvalfirði endurtekur sig

Aðkoma Landsbankans og Íslandsbanka er sérstaklega jákvæð. Bankarnir tveir voru á sínum tíma lykilaðilar í fjármögnun Hvalfjarðarganga. Það hefur mikla þýðingu að fá Landsbankann, banka í eigu allra landsmanna, að borðinu strax á þessu fyrsta rannsóknarstigi. Þátttaka bankanna tveggja tryggir að undirbúningur fjármögnunar á síðari stigum, byggi á sama faglega grunni og sömu dýrmætu reynslu og í Hvalfirði. Niðurstöður rannsókna munu að lokum leiða í ljós fýsileika verkefnisins og er þessi sögulega samstaða fjármálastofnana og stórra bakhjarla á borð við N1 skýrt merki um vilja til að kanna þessa leið til hlítar.

N1 sem stefnumótandi bakhjarl

Koma N1 í hluthafahópinn markar einnig tímamót. Sem leiðandi fyrirtæki í þjónustu við samgöngur og orkuskipti á Íslandi, sér N1 mikil tækifæri í uppbyggingu innviða á Suðurlandi. Þátttaka þeirra tryggir að verkefnið tengist beint framtíðarsýn um vistvænar samgöngur og öfluga þjónustu við íbúa og atvinnulíf á Suðurlandi.

Auk Landsbankans og N1 hafa fleiri öflug félög gengið frá greiðslu hlutafjár:

  • Sjávarútvegurinn: Bergur-Huginn (dótturfélag Síldarvinnslunnar) og Bylgja VE 75.
  • Svæðisbundnir bakhjarlar: Eignarhaldsfélag Suðurlands hf. (meðal annars í eigu sveitarfélaga á Suðurlandi) og Tölvun ehf. í Vestmannaeyjum.

Haraldur Pálsson, hjá Eyjagöngum ehf.:

„Það er gríðarleg viðurkenning fyrir verkefnið að þessir aðilar hafi ákveðið að gerast hluthafar í Eyjagöngum. Að sjá bankana tvo sem gerðu Hvalfjarðargöngin möguleg mæta aftur til leiks. Við erum komin með fagaðila sem þekkja þessa vegferð út og inn, í hluthafahóp félagsins, það teljum við vera mjög mikilvægt skref.“ 

Hlutafjáraukningunni er senn að ljúka, en stefnt er að 200 milljóna króna heildarfjármögnun í þessum fasa.

Similar Posts