Um Eyjagöng
Markmið Eyjaganga er að draga úr óvissu varðandi framkvæmdakostnað á gerð jarðganga milli lands og Heimaeyjar
Mikilvægt er að framkvæma þrepaskiptar rannsóknir til að draga úr óvissu varðandi kostnað á gerð 18 km jarðganga í bergi undir sjó.


Eyjagöng munu auka hagsæld allra Íslendinga
Með tilkomu jarðganga til Vestmannaeyja mun hagvöxtur í landinu öllu aukast. Hagræðing verður í rekstri fyrirtækja og opinberra aðila sem og heimila landsins.
Framkvæmdastjóri Eyjaganga
Nánar um framkvæmdastjóra
Haraldur er hagfræðingur og tölvunarfræðingur frá Háskóla Íslands með fjölbreytta reynslu úr fjármálum, tækni og rekstri. Hann stofnaði Eyjagöng í nóvember 2025 og leiðir verkefnið frá fyrstu hugmynd að framkvæmd, í samstarfi við stjórnvöld, verkfræðinga, fjárfesta og aðra samstarfsaðila.
Haraldur situr í stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins, sem hefur um 4 milljarða evra í stýringu, og var áður varamaður í stjórn hans. Hann var framkvæmdastjóri ÍBV íþróttafélags 2021–2023, starfaði sem sérfræðingur og hugbúnaðarverkfræðingur hjá GAMMA Capital Management og Marel, og hefur starfað sem fjármálaráðgjafi og stefnumótunarráðgjafi hjá Leitni Advisory.
Haraldur er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum, þar sem hann býr, og vann sem sjómaður í áratug. Sú reynsla, ásamt greiningu á samfélagslegum áhrifum samgangna fyrir Vestmannaeyjabæ, gefur honum innsýn í bæði lífæðar eyjanna og þarfir samfélagsins.
Ráðgjafaráð
Stjórn félagsins leitaði til einstaklinga um að taka þátt í ráðgjafaráði Eyjaganga.
Þessi hópur saman stendur af reynslumiklu fólki á ólíkum sviðum.
| Ármann Höskuldsson, eldfjallafræðingur | Helgi Bernódusson, fv. skrifstofustjóri Alþingis |
| Björn Ágúst Björnsson, áreiðanleikaverkfræðingur | Helgi Bragason, lögmaður |
| Björn Sigþór Skúlason, byggingarverkfræðingur | Kristín Jónsdóttir, jarðeðlisfræðingur |
| Brynjar Ólafsson, samgönguverkfræðingur | Kristín Vogfjörð, jarðeðlisfræðingur |
| Daði Pálsson, frumkvöðull | Matthías Loftsson, jarðfræðingur |
| Gísli Gíslason, stofnandi Spalar | Pétur Þór Jónasson, Greið leið ehf. |
| Grímur Björnsson, jarðeðlisfræðingur | Tryggvi Már Sæmundsson, blaðamaður |
| Guðmundur Örn Gunnarsson, rekstrarmaður | Þór Engilbertsson, Ægisdyr |
| Guðni Einarsson, |






