-
Borkjarnar á dýpi Eyjaganga mun betri en vænst var
Að mati norska jarðgangasérfræðingsins Eivinds Grøv eru borkjarnar á því dýpi sem Eyjagöngin munu væntanlega liggja mun betri en hann hafði búist við. Hann segir niðurstöðurnar lofa mjög góðu um framhaldið. Grøv skoðaði kjarnana úr rannsóknarholum á Heimaey og í Landeyjasandi í heimsókn sinni til Íslands á dögunum. Holan á Heimaey náði 234 metra dýpi…
-
Eivind Grøv kynnti sér aðstæður í Vestmannaeyjum
Eivind Grøv, tæknilegur ráðgjafi Eyjaganga, var hér á landi í liðinni viku og heimsótti meðal annars Vestmannaeyjar þar sem hann kynnti sér aðstæður á vettvangi. Í heimsókninni fór Grøv meðal annars yfir mögulega legu ganganna, skoðaði svæðið umhverfis rannsóknarholu EG-01 á Heimaey og kynnti sér staðhætti og aðstæður til framkvæmda. Þá fór hann yfir kjarnasýni…
-
Innviðaráðuneytið og Eyjagöng undirrita viljayfirlýsingu
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra og forsvarsmenn Eyjaganga undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um samstarf um könnun á fýsileika jarðganga milli lands og Vestmannaeyja. Markmiðið er að skapa grundvöll fyrir áframhaldandi rannsóknir og greiningar í tengslum við verkefnið. Viljayfirlýsingin kveður á um að Eyjagöng ehf. beri ábyrgð á og fjármagni heildstæðar fýsileikarannsóknir, sem m.a. taka til jarðfræðilegra og…
-
Kjarnaborun í Landeyjum lokið: Gagnasöfnun fyrir fýsileikamat Eyjaganga er lokið
Kjarnaborun í Landeyjum lokið: Gagnasöfnun fyrir fýsileikamat Eyjaganga er lokið Kjarnaborun við rannsóknarholu EG-02 á Landeyjasandi lauk á laugardag, en borunin náði niður á 291,5 metra dýpi. Þar með er öllum vettvangsrannsóknum lokið og búið að safna öllum nauðsynlegum gögnum sem þarf til að ráðast í heildstætt fýsileikamat á jarðgöngum milli lands og Eyja í…
-
Norconsult semur við Eyjagöng um gerð fýsileika- og kostnaðarmats á jarðgöngum til Vestmannaeyja
Eyjagöng ehf. hafa gengið frá samningi við norska ráðgjafafyrirtækið Norconsult um að vinna heildstætt kostnaðar- og fýsileikamat á gerð neðansjávarganga milli lands og Eyja. Verkefnið er mikilvægur áfangi í að kortleggja tæknilegar forsendur samgöngubótar sem getur tryggt heilsárs vegtengingu meginlandsins við Vestmannaeyjar. Norconsult býr yfir víðtækri reynslu af hönnun og mati á flóknum neðansjávargöngum meðal annars í…
-
Rannsóknarhola EG-02 komin í 180 metra dýpi á Landeyjasandi
Borun rannsóknarholunnar EG-02 á Landeyjasandi náði 180,5 metra dýpi í vikunni. Framkvæmdin er liður í gagnaöflun Eyjaganga ehf. við kortlagningu á jarðlögum meginlandsmegin. Ræktunarsamband Flóa og Skeiða heldur utan um sjálfa borunina, en verkfræðistofan EFLA og jarðfræðistofan Völuberg sjá um eftirlit, faglega umsjón og rannsóknarráðgjöf vegna verkefnisins. Í upphafi var holan fóðruð niður á 41…
-
Hafbotnsmælingar gengu vel
Árangursríkum hljóðendurvarpsmælingum í tengslum við undirbúning Eyjaganga er nú lokið. Á sjö mælingadögum voru alls mældir 282 kílómetrar (152 sjómílur), en um var að ræða þriðja rannsóknarstig verkefnisins. Leiðangurinn í heild sinni þykir hafa heppnast vel, sérstaklega þegar tekið er tillit til þess að aðstæður á sjó voru oft krefjandi. Mælitækin sem notuð voru eru…
-
Kjarnaborunin á Landeyjasandi komin niður á 108 metra
Borunin fyrir Eyjagöngum miðar vel áfram. Í gær, 11. júlí, náði kjarnaborunin á Landeyjasandi 108,5 metra dýpi. Nú eru 22 dagar síðan fyrstu kjarnarnir komu upp á yfirborðið á Landeyjasandi. Verkið hefur gengið vel, en borunin er liður í mikilvægum rannsóknum fyrir fyrirhuguð Eyjagöng. Sambærilegur gangur og í Vestmannaeyjum Þegar horft er til baka er…
-
Tímamót í rannsóknum Eyjaganga: Unnið við öll þrjú rannsóknarþrepin samtímis
Í dag, 30. júní, urðu ákveðin tímamót í hagkvæmnis- og fýsileikarannsóknum vegna Eyjaganga, en þetta er í fyrsta sinn sem virkni er í gangi á öllum þremur rannsóknarþrepum verkefnisins samtímis. Viðamikil gagnasöfnun stendur yfir á landi, í borholum og á sjó. Samhæfing ólíkra rannsóknaraðferða á sama tíma markar ákveðinn hápunkt í ferlinu og tryggir hámarks…
-
Hafsbotnsmælingar hefjast í næstu viku
Hafsbotnsmælingar hefjast í næstu viku Í næstu viku munu Eyjagöng hefja hljóðendurvarpsmælingar í Eyjasundi í samstarfi við Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) og Landhelgisgæslu Íslands. Mælingarnar eru liður í undirbúningi fyrir mögulega vegtengingu við Heimaey og markar þetta upphaf þriðja þrepsins í þrepaskiptum rannsóknum á svæðinu. Áætlað er að mælingarnar hefjist þann 1. júlí næstkomandi og muni þær standa…
-
Fyrstu kjarnarnir úr EG-02 komnir á yfirborðið
Söguleg stund var á Landeyjasandi í dag þegar fyrstu kjarnarnir komu upp úr rannsóknarholunni EG-02. Boranir á Landeyjasandi standa nú yfir sem hluti af viðamiklum undirbúningsrannsóknum fyrir möguleg Eyjagöng. Í dag náðist mikilvægur áfangi þegar borinn náði niður í fast berg og fyrstu kjarnasýnin litu dagsins ljós. Traust undirstaða á 41 metra dýpi Búið er…
-
Allt klárt fyrir kjarnaborun á Landeyjasandi
Allur undirbúningur er nú á lokastigi og allt klárt til að hefja fóðrun og kjarnaborun á rannsóknarholunni EG-02 á Landeyjasandi. Verkefnið er einn af lykilþáttunum í viðamiklum jarðfræðirannsóknum sem munu skerða úr um fýsileika þess að gera jarðgöng á milli lands og Vestmannaeyja. Vegna hinna sérstöku aðstæðna á Landeyjasandi, þar sem efstu lög jarðvegsins samanstanda…
-
Undirbúningur fyrir næstu borholu er hafinn
Góður gangur er í rannsóknum Eyjaganga. Nú hefur mikilvægum áfanga verið náð, en kjaraborun við holu EG-01 á Eiðinu hér í Vestmannaeyjum er formlega lokið! Þessi áfangi færir okkur dýrmæt gögn og mikilvæga þekkingu á jarðlögunum sem munu nýtast beint í áframhaldandi undirbúning og hönnun ganganna. Næsti áfangastaður: Landeyjasandur Kjarnaborinn Karl Prins er farinn frá…
-
Ánægjuleg heimsókn, ráðherra og forstjóri Vegagerðarinnar á borstæði Eyjaganga
Verkefnið í kringum Eyjagöng tók mikilvægt og ánægjulegt skref í dag þegar góðir gestir sóttu borstæði Eyjaganga heim í Vestmannaeyjum. Það var okkur mikill heiður að taka á móti Eyjólfi Ármannssyni, innviðaráðherra, fulltrúum frá innviðaráðuneytinu, ásamt Bergþóru Þorkelsdóttur forstjóra Vegagerðarinna og þeirra fólki. Heimsóknirnar sýna þann mikla áhuga og stuðning sem verkefnið nýtur á æðstu…
-
Kjarnaborun hefur gengið vel, flutningur í Landeyjasand á næstunni
Kjarnaborun í EG-01 holu Eyjaganga á Eiðinu hefur gengið feykilega vel síðustu daga. Borinn er nú kominn niður á 222,3 metra dýpi, en aðeins er um vika síðan 100 metra markinu var náð. Ef áætlanir ganga eftir lýkur borun um helgina og verður borinn þá fluttur á Landeyjasand þar sem borun á holu EG-02 hefst….
-
Eyjagöng fá alþjóðlegan sérfræðing í neðansjávargangagerð til liðs við sig
Eyjagöng ehf. tilkynna að félagið hafi gert samstarfssamning við prófessor Eivind Grøv, einn fremsta sérfræðing heims á sviði neðansjávargangagerðar. Grøv mun gegna hlutverki tæknilegs ráðgjafa félagsins við undirbúning og hönnun fyrirhugaðra neðansjávarganga milli meginlands Íslands og Vestmannaeyja. Eivind Grøv var aðalvísindamaður hjá norsku rannsóknarstofnuninni SINTEF og fyrrverandi aðjúnkt við NTNU-háskólann í Þrándheimi. Hann hefur yfir 40 ára reynslu af jarðgangagerð…
-
Framgangur við rannsóknarholu EG-01: Borun komin á beinu brautina
Rannsóknarholan EG-01 á Eiðinu í Vestmannaeyjum hefur nú náð 101,3 metra dýpi. Þrátt fyrir óvæntar tafir síðustu daga, er verkefnið nú komið á góða siglingu á ný. Undirbúningur og rannsóknir fyrir Eyjagöng eru í fullum gangi og rannsóknarholan EG-01 er lykilatriði í því að afla mikilvægra jarðfræðiupplýsinga. Tafir vegna samgönguvanda Í síðustu viku kom upp…
-
FRÉTTATILKYNNING: Innviðasjóður í eigu lífeyrissjóða, stéttarfélög og stærstu fyrirtæki landsins sameinast um Eyjagöng
VESTMANNAEYJAR, 6. maí. Enn stækkar hópur þeirra öflugu bakhjarla sem standa að rannsóknarfasa Eyjaganga. Eimskip, Olís, stéttarfélögin Drífandi, Jötunn og Verðandi, innviðasjóðurinn Innviðir fjárfestingar II slhf. og fjárfestingarfélagið MK 4 ehf. hafa nú bæst í hóp hluthafa og þegar greitt fyrir hlut sinn. Innviðir fjárfestingar: Fagfjárfestar styðja við undirbúninginn Innkoma Innviða fjárfestinga II slhf. færir verkefninu mikla…
-
Borinn er laus
Við greinum frá því með ánægju að kjarnaborinn er laus á nýjan leik. Þrautseigja og réttur tækjabúnaður skilaði tilætluðum árangri. Eftir krefjandi daga og mikla vinnu við að losa kjarnaborinn, sem sat fastur í afar hörðu bergi, komu loksins þær fréttir sem allir biðu eftir: Borinn er laus! Það var öflug loftpressa sem reyndist vera…
