Rannsóknarhola EG-02 komin í 180 metra dýpi á Landeyjasandi

Borun rannsóknarholunnar EG-02 á Landeyjasandi náði 180,5 metra dýpi í vikunni. Framkvæmdin er liður í gagnaöflun Eyjaganga ehf. við kortlagningu á jarðlögum meginlandsmegin.

Ræktunarsamband Flóa og Skeiða heldur utan um sjálfa borunina, en verkfræðistofan EFLA og jarðfræðistofan Völuberg sjá um eftirlit, faglega umsjón og rannsóknarráðgjöf vegna verkefnisins. Í upphafi var holan fóðruð niður á 41 metra dýpi til að styðja við laus yfirborðslög, en upp frá því hefur verið borað í fastan berggrunn.

Sýni úr boruninni verða send í greiningu þar sem mældur verður bergstyrkur, sprunguþéttleiki og lekaeiginleikar. Gögnin munu síðan nýtast ásamt niðurstöðum úr borholunni EG-01 í Vestmannaeyjum og endurvarpsmælingum úr Eyjasundi við að vinna heildstætt jarðfræðilíkan af svæðinu. Áætlað er að fýsileikamat jarðganga liggi fyrir í lok árs.

Stefnt er að því að halda borun áfram niður á um 300 metra dýpi.

Karl Prins í Landeyjasandi í Rangárþingi Eystra.

Similar Posts