Kjarnaborun hafin
Kjarnaborun hófst í Vestmannaeyjum laugardaginn 18. apríl og er reiknað með að hún standi yfir í heilan mánuð. Að henni lokinni verður búnaðurinn fluttur yfir í Landeyjasand og hafist handa þar við kjarnaborun.
Árangursríkum hljóðendurvarpsmælingum í tengslum við undirbúning Eyjaganga er nú lokið. Á sjö mælingadögum voru alls mældir 282 kílómetrar (152 sjómílur), en um var að ræða þriðja rannsóknarstig verkefnisins. Leiðangurinn í heild sinni þykir hafa heppnast vel, sérstaklega þegar tekið er tillit til þess að aðstæður á sjó voru oft krefjandi. Mælitækin sem notuð voru eru…
Allur undirbúningur er nú á lokastigi og allt klárt til að hefja fóðrun og kjarnaborun á rannsóknarholunni EG-02 á Landeyjasandi. Verkefnið er einn af lykilþáttunum í viðamiklum jarðfræðirannsóknum sem munu skerða úr um fýsileika þess að gera jarðgöng á milli lands og Vestmannaeyja. Vegna hinna sérstöku aðstæðna á Landeyjasandi, þar sem efstu lög jarðvegsins samanstanda…
Fjallað var um Eyjagöng í kvöldfréttum RÚV föstudagskvöldið 17. apríl 2026. Þar var meðal annars sýnt frá því þegar kjarnaborinn kom til Vestmannaeyja með Herjólfi daginn áður.
Kjarnaborun í EG-01 holu Eyjaganga á Eiðinu hefur gengið feykilega vel síðustu daga. Borinn er nú kominn niður á 222,3 metra dýpi, en aðeins er um vika síðan 100 metra markinu var náð. Ef áætlanir ganga eftir lýkur borun um helgina og verður borinn þá fluttur á Landeyjasand þar sem borun á holu EG-02 hefst….
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra og forsvarsmenn Eyjaganga undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um samstarf um könnun á fýsileika jarðganga milli lands og Vestmannaeyja. Markmiðið er að skapa grundvöll fyrir áframhaldandi rannsóknir og greiningar í tengslum við verkefnið. Viljayfirlýsingin kveður á um að Eyjagöng ehf. beri ábyrgð á og fjármagni heildstæðar fýsileikarannsóknir, sem m.a. taka til jarðfræðilegra og…
Söguleg stund var á Landeyjasandi í dag þegar fyrstu kjarnarnir komu upp úr rannsóknarholunni EG-02. Boranir á Landeyjasandi standa nú yfir sem hluti af viðamiklum undirbúningsrannsóknum fyrir möguleg Eyjagöng. Í dag náðist mikilvægur áfangi þegar borinn náði niður í fast berg og fyrstu kjarnasýnin litu dagsins ljós. Traust undirstaða á 41 metra dýpi Búið er…