Kjarnaborun í Landeyjum lokið: Gagnasöfnun fyrir fýsileikamat Eyjaganga er lokið
Kjarnaborun í Landeyjum lokið: Gagnasöfnun fyrir fýsileikamat Eyjaganga er lokið
Kjarnaborun við rannsóknarholu EG-02 á Landeyjasandi lauk á laugardag, en borunin náði niður á 291,5 metra dýpi. Þar með er öllum vettvangsrannsóknum lokið og búið að safna öllum nauðsynlegum gögnum sem þarf til að ráðast í heildstætt fýsileikamat á jarðgöngum milli lands og Eyja í vetur.
Fyrr í sumar lauk vel heppnuðum hafbotns- og hljóðendurvarpsmælingum á sundinu milli lands og Vestmannaeyja, auk kjarnaborunar við Klifið í Vestmannaeyjum.
Benedikt Óskar Steingrímsson, jarðfræðingur hjá Völubergi sem haft hefur umsjón með kjarnaborununum fyrir Eyjagöng, segir niðurstöðurnar mikilvægan áfanga:
„Borun holu EG-02 á Landeyjasandi hefur verið áskorunum háð bæði vegna aðstæðna á yfirborði og í bergi. Holan hefur gefið okkur mjög nytsamlegar upplýsingar á þykkt, gerð og uppbyggingu jarðlaga við ströndina suðvestan við Kross.
Jarðfræðilegar aðstæður í Landeyjum eru ekki svo frábrugðnar þeim í Eyjum þar sem nokkuð þykk móbergsmyndun, sem er að mestu uppbyggð af sprungnu basalti, liggur ofan á mun þéttara setbergi.
Á næstu vikum verður unnin heildstæð jarðfræðiskýrsla þar sem báðar kjarnaholurnar ásamt hljóðendurvarpsmælingum ÍSOR á sundinu milli Lands og Eyja verða notað til grundvallar.“
Fýsileika- og kostnaðarmat í vetur
Á næstu mánuðum verður unnið úr öllum þeim gögnum sem aflað hefur verið. Á þeim grunni munu Efla og Völuberg vinna saman að gerð fýsileika- og kostnaðarmats annars vegar, og verkfræðistofan Norconsult mun vinna sjálfstætt fýsileika- og kostnaðarmat hins vegar. Þessar úttektir munu varpa ljósi á tæknilegar og fjárhagslegar forsendur jarðgangagerðarinnar og er niðurstaðna að vænta í lok árs.


