Hafsbotnsmælingar hefjast í næstu viku
Hafsbotnsmælingar hefjast í næstu viku
Í næstu viku munu Eyjagöng hefja hljóðendurvarpsmælingar í Eyjasundi í samstarfi við Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) og Landhelgisgæslu Íslands. Mælingarnar eru liður í undirbúningi fyrir mögulega vegtengingu við Heimaey og markar þetta upphaf þriðja þrepsins í þrepaskiptum rannsóknum á svæðinu.
Áætlað er að mælingarnar hefjist þann 1. júlí næstkomandi og muni þær standa yfir í allt að tvær vikur.
Landmælingaskipið Baldur væntanlegt á sunnudagskvöld
Undirbúningur er þegar á lokastigi og er landmælingaskipið Baldur, sem er í eigu Landhelgisgæslunnar, væntanlegt til Vestmannaeyja á sunnudagskvöld. Um borð verða tveir erlendir sérfræðingar á vegum hollenska fyrirtækisins Geo Marine Survey Systems, sem munu aðstoða við framkvæmdina og öflun gagna, ásamt sérfræðingum ÍSOR.
Hvað eru hljóðendurvarpsmælingar? Mælingarnar eru notaðar til þess að kortleggja jarðlög undir hafsbotninum. Með því að senda hljóðbylgjur niður í botninn og mæla bergmálið sem snýr til baka, má fá nákvæma mynd af þykkt og gerð setlaga og bergs, sem er lykilatriði við hönnun og skipulag neðansjávarganga.
Þær upplýsingar sem safnast í þessum mælingum munu veita mikilvæga innsýn í jarðfræði svæðisins milli lands og Eyja og nýtast við frekari fýsileikamat verkefnisins.


