Það verða göng til Eyja segir Eyjólfur
Eyjólfur Ármannsson sagði í Bítinu á Bylgjunni í dag 3. mars 2026 að í framtíðinni verða göng til Vestmannaeyja, hann er mjög ánægður með tilvist Eyjaganga ehf.
Borunin fyrir Eyjagöngum miðar vel áfram. Í gær, 11. júlí, náði kjarnaborunin á Landeyjasandi 108,5 metra dýpi. Nú eru 22 dagar síðan fyrstu kjarnarnir komu upp á yfirborðið á Landeyjasandi. Verkið hefur gengið vel, en borunin er liður í mikilvægum rannsóknum fyrir fyrirhuguð Eyjagöng. Sambærilegur gangur og í Vestmannaeyjum Þegar horft er til baka er…
Hafsbotnsmælingar hefjast í næstu viku Í næstu viku munu Eyjagöng hefja hljóðendurvarpsmælingar í Eyjasundi í samstarfi við Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) og Landhelgisgæslu Íslands. Mælingarnar eru liður í undirbúningi fyrir mögulega vegtengingu við Heimaey og markar þetta upphaf þriðja þrepsins í þrepaskiptum rannsóknum á svæðinu. Áætlað er að mælingarnar hefjist þann 1. júlí næstkomandi og muni þær standa…
Eivind Grøv, tæknilegur ráðgjafi Eyjaganga, var hér á landi í liðinni viku og heimsótti meðal annars Vestmannaeyjar þar sem hann kynnti sér aðstæður á vettvangi. Í heimsókninni fór Grøv meðal annars yfir mögulega legu ganganna, skoðaði svæðið umhverfis rannsóknarholu EG-01 á Heimaey og kynnti sér staðhætti og aðstæður til framkvæmda. Þá fór hann yfir kjarnasýni…
Borun rannsóknarholunnar EG-02 á Landeyjasandi náði 180,5 metra dýpi í vikunni. Framkvæmdin er liður í gagnaöflun Eyjaganga ehf. við kortlagningu á jarðlögum meginlandsmegin. Ræktunarsamband Flóa og Skeiða heldur utan um sjálfa borunina, en verkfræðistofan EFLA og jarðfræðistofan Völuberg sjá um eftirlit, faglega umsjón og rannsóknarráðgjöf vegna verkefnisins. Í upphafi var holan fóðruð niður á 41…
Við greinum frá því með ánægju að kjarnaborinn er laus á nýjan leik. Þrautseigja og réttur tækjabúnaður skilaði tilætluðum árangri. Eftir krefjandi daga og mikla vinnu við að losa kjarnaborinn, sem sat fastur í afar hörðu bergi, komu loksins þær fréttir sem allir biðu eftir: Borinn er laus! Það var öflug loftpressa sem reyndist vera…
Borunarvinnan við Eyjagöng mætti ákveðnum áskorunum um síðustu helgi þegar kjarnaborinn festist í hörðu bergi. Unnið er að lausnum og viðbótartæki eru komin til Eyja. Seinnipart laugardagsins 25. apríl kom upp sú staða að kjarnaborinn festist í holunni eftir að hafa unnið sig í gegnum mjög hart berg. Borinn situr fastur á um 66 metra dýpi….