Fyrstu kjarnarnir komnir upp

Fyrstu sýnin fóru að sjást eftir hádegi í gær, mánudaginn 20. apríl.
Byrjað var á því að fóðra holuna niður á 15 metra og var fyrsta sýnið því frá 15. meter.
Farið verður í að lektarprufa holuna eftir hádegi í dag.

Eftirlitsmaður á borstað er Benedikt Óskar Steingrímsson fyrir hönd fyrirtækisins Völubergs og fara allar aðgerðir í verkinu í gegnum hann. Völuberg ásamt Eflu sjá saman um að stýra rannsókninni fyrir hönd Eyjaganga.

Ræktunarsamband Flóa og Skeiða frá Selfossi, sér um framkvæmd borunnar og eru eigendur tækja og skaffa færustu sérfræðinga til verksins. Hinn þaulreyndi borstjóri, Magnús Gíslason sést á meðfylgjandi mynd halda á fyrsta borsýninu.

Similar Posts

  • Borinn er laus

    Við greinum frá því með ánægju að kjarnaborinn er laus á nýjan leik. Þrautseigja og réttur tækjabúnaður skilaði tilætluðum árangri. Eftir krefjandi daga og mikla vinnu við að losa kjarnaborinn, sem sat fastur í afar hörðu bergi, komu loksins þær fréttir sem allir biðu eftir: Borinn er laus! Það var öflug loftpressa sem reyndist vera…

  • Krefjandi aðstæður við borun

    Borunarvinnan við Eyjagöng mætti ákveðnum áskorunum um síðustu helgi þegar kjarnaborinn festist í hörðu bergi. Unnið er að lausnum og viðbótartæki eru komin til Eyja. Seinnipart laugardagsins 25. apríl kom upp sú staða að kjarnaborinn festist í holunni eftir að hafa unnið sig í gegnum mjög hart berg. Borinn situr fastur á um 66 metra dýpi….

  • Kjarnaborun gengur vel

    Kjarnaborun hefur gengið nokkuð vel og er borinn kominn niður á 63 metra. Búið er að steypa einu sinni í holuna og hefur hún verið lektarprófuð tvívegis. Á meðfylgjandi mynd má sjá Benedikt Óskar Steingrímsson jarðfræðing Völubergs ásamt Árna Sigfússyni stjórnarformanni Eyjaganga, ræða ný kjarnasýni á borstæði félagsins við Klifið. Haraldur Pálsson framkvæmdastjóri, Gylfi Sigfússon…

  • Karl Prins kominn til Eyja

    Mikilvægur áfangi í undirbúningi jarðganga á milli lands og Eyja er að hefjast, en kjarnaborinn Karl Prins er nú kominn til Vestmannaeyja.Íbúar og vegfarendur hafa nýverið tekið eftir komu þessa öfluga tækis. Borinn mun verða notaður til að sækja sýni úr jarðlögum sem veita munu ómetanlegar upplýsingar um berggæði og jarðfræði á fyrirhugaðri gangaleið. Borað…

  • Hafbotnsmælingar gengu vel

    Árangursríkum hljóðendurvarpsmælingum í tengslum við undirbúning Eyjaganga er nú lokið. Á sjö mælingadögum voru alls mældir 282 kílómetrar (152 sjómílur), en um var að ræða þriðja rannsóknarstig verkefnisins. Leiðangurinn í heild sinni þykir hafa heppnast vel, sérstaklega þegar tekið er tillit til þess að aðstæður á sjó voru oft krefjandi. Mælitækin sem notuð voru eru…

  • Kjarnaborunin á Landeyjasandi komin niður á 108 metra

    Borunin fyrir Eyjagöngum miðar vel áfram. Í gær, 11. júlí, náði kjarnaborunin á Landeyjasandi 108,5 metra dýpi. Nú eru 22 dagar síðan fyrstu kjarnarnir komu upp á yfirborðið á Landeyjasandi. Verkið hefur gengið vel, en borunin er liður í mikilvægum rannsóknum fyrir fyrirhuguð Eyjagöng. Sambærilegur gangur og í Vestmannaeyjum Þegar horft er til baka er…