Kjarnaborunin á Landeyjasandi komin niður á 108 metra
Borunin fyrir Eyjagöngum miðar vel áfram. Í gær, 11. júlí, náði kjarnaborunin á Landeyjasandi 108,5 metra dýpi.
Nú eru 22 dagar síðan fyrstu kjarnarnir komu upp á yfirborðið á Landeyjasandi. Verkið hefur gengið vel, en borunin er liður í mikilvægum rannsóknum fyrir fyrirhuguð Eyjagöng.
Sambærilegur gangur og í Vestmannaeyjum
Þegar horft er til baka er ljóst að framvindan á Landeyjasandi er að mörgu leyti mjög sambærileg þeim gangi sem var á kjarnaboruninni í Vestmannaeyjum.
Hvað er kjarnaborun? Kjarnaborun er gerð til að ná upp heilum bergsýnum (kjörnum) úr jörðinni. Þessi sýni veita verkfræðingum og jarðfræðingum ómetanlegar upplýsingar um jarðlög og berggæði á svæðinu, sem er undirstaða þess að hægt sé að hanna og grafa Eyjagöng á öruggan hátt.
Framhaldið fram undan
Sýnin sem hafa komið upp síðustu daga gefa mikilvæga innsýn í jarðfræði svæðisins. Borunin mun halda áfram næstu daga til að tryggja að sem bestar upplýsingar og stefnum við að því að safna kjörnum niður á 300 metra dýpi.

Hafbotnsmælingar
Fyrstu mælingar fóru fram á hafsbotninum í Eyjasundi á sunnudag 5. júlí sl. Þóttust þær heppnast vel og er talið að þær hafi náð uþb. 300 metra undir sjávarbotninn, en mikil vinna er framundan við að greina gögnin vel.
Mælingar halda áfram í komandi viku, en orlof hjá starfsmönnum Landhelgisgæslunnar og brælan í byrjun síðustu viku hafa valdið töfum á mælingum.
Að mánudeginum frátöldum er útlitið gott næstu daga til að ná góðum mælingum í vikunni, en ölduhæðin hefur mikil áhrif á gæði gagnanna.

