Fyrstu kjarnarnir úr EG-02 komnir á yfirborðið

Söguleg stund var á Landeyjasandi í dag þegar fyrstu kjarnarnir komu upp úr rannsóknarholunni EG-02.

Boranir á Landeyjasandi standa nú yfir sem hluti af viðamiklum undirbúningsrannsóknum fyrir möguleg Eyjagöng. Í dag náðist mikilvægur áfangi þegar borinn náði niður í fast berg og fyrstu kjarnasýnin litu dagsins ljós.

Traust undirstaða á 41 metra dýpi

Búið er að fóðra rannsóknarholuna niður í gegnum sandinn á 41 metra dýpi til að tryggja stöðugleika hennar. Rétt neðan við fóðringuna, á 41,5 metra dýpi, tók við fast klettalag.

Fyrstu greiningar á kjarnanum sýna að um er að ræða olivínbasalt.

Hvað er olivínbasalt? Olivínbasalt er þétt og sterkt dulkornótt blágrýti. Í jarðgöngum er þessi berggerð almennt talin mjög hagstæð, þar sem hún veitir góðan stöðugleika og er traust samfella til greiningar og borunar.

Mikilvægt skref fyrir Eyjagöng

Sýnin sem fást úr þessari holu munu gefa dýrmæta innsýn í jarðlagaskipan svæðisins og munu nýtast verkfræðingum og jarðfræðingum við áframhaldandi hönnun og áhættumat.

Borgengið heldur áfram störfum og munum við flytja nánari fréttir af framgangi mála eftir því sem boruninni miðar áfram og fleiri sýni greinast.

Similar Posts