Framgangur við rannsóknarholu EG-01: Borun komin á beinu brautina

Rannsóknarholan EG-01 á Eiðinu í Vestmannaeyjum hefur nú náð 101,3 metra dýpi. Þrátt fyrir óvæntar tafir síðustu daga, er verkefnið nú komið á góða siglingu á ný.

Undirbúningur og rannsóknir fyrir Eyjagöng eru í fullum gangi og rannsóknarholan EG-01 er lykilatriði í því að afla mikilvægra jarðfræðiupplýsinga.

Tafir vegna samgönguvanda

Í síðustu viku kom upp óhapp við borunina þegar borinn fór af leið og holan klauf sig. Ástæðan fyrir þessu var sú að steypa í holunni hafði harðnað umfram það sem æskilegt var.

Tafirnar má rekja beint til samgöngumála. Vegna samgöngutafa milli lands og Eyja komust starfsmenn ekki með ferjunni á tilsettum tíma daginn eftir steypuvinnu, þar sem Herjólfur þurfti að bíða í Landeyjahöfn fram að hádegi. Hafði það í för með sér að steypan harðnaði of mikið og borinn fór af leið og olli það talsverðri seinkun á verkinu.

Horft fram veginn

Eftir að hafa unnið úr þessum áskorunum er bjartsýni enn ríkjandi hjá framkvæmdaraðilum.

„Við vonumst til þess að við séum nú komin á beinu brautina í boruninni. Holan er orðin mjög stöndug og góð, sem gefur okkur góðar vonir um áframhaldandi framgang verksins,“ segir Benedikt Óskar Steingrímsson jarðfræðingur Völubergs.

Við munum halda áfram að uppfæra íbúa og áhugasama um gang mála hjá Eyjagöngum jafnóðum og verkefninu miðar áfram.