Fjárfestar

AÐALFUNDARBOÐ

Eyjagöng ehf., kt. 481225-3450 boða til aðalfundar félagsins sem haldinn verður miðvikudaginn 30. september 2026, kl. 15:00, með rafrænum hætti á Microsoft Teams.

Dagskrá:

  1. Skýrsla framkvæmdastjóra.
  2. Samþykktur efnahags- og rekstrarreikningur fyrir liðið starfsár lagður fram.
  3. Kjör stjórnar og skoðunarmanns.
  4. Ákvörðun um meðferð hagnaðar eða taps, þar á meðal arðs.
  5. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og skoðunarmanns fyrir störf á starfsárinu.
  6. Önnur mál löglega fram borin.

Fyrirkomulag rafræns fundar:

Fundurinn fer fram með rafrænum hætti á Teams, sbr. heimild 11. gr. samþykkta félagsins. Hluthafar sem hyggjast taka þátt eru beðnir um að tilkynna þátttöku sína til félagsins á eyjagong@eyjagong.is eigi síðar en 28. september. Tengill inn á fundinn verður sendur á þá hluthafa sem tilkynna þátttöku.

Þannig birt á vef Eyjaganga ehf. – eyjagong.is þriðjudaginn 15. september 2026 kl 21:15