Hvað eru kjarnaboranir?
Kjarnaborun er rannsóknaraðferð þar sem hol borkróna sker sívalan bergkjarna úr jarðlögunum og færir hann upp á yfirborðið. Kjarnarnir sýna okkur nákvæmlega úr hverju bergið undir fótum okkar er, hversu þétt það er og hversu mikið vatn berst í gegnum það.
Fyrir Eyjagöng, 18 km neðansjávarveg milli Vestmannaeyja og Landeyja, eru þessar upplýsingar lykilatriði. Þær ráða því hvaða aðferð hentar við gangagerðina, hversu mikil áhætta fylgir verkinu og hver kostnaðurinn verður.
Hvar var borað?
Boraðar voru tvær kjarnaholur, sín á hvorum enda fyrirhugaðrar gangaleiðar. EG-01 er á Eiðinu á Heimaey, nálægt dælustöðinni undir hlíðum Klifs. EG-02 er á Landeyjasandi í Austur-Landeyjum, suðvestan við bæinn Kross. Staðsetningarnar voru valdar út frá áætlaðri legu ganganna. Þannig fengust upplýsingar um jarðlögin undir Eyjum og undir Landeyjasandi.
Hvernig fór borunin fram?
Báðar holurnar voru boraðar lóðrétt. Fyrst var borað í gegnum laus yfirborðslög og fóðurrör sett niður að klöpp. Þar fyrir neðan tók við kjarnaborun með 45–55 mm borkrónu (NQ), sem sker sívala bergsúlu, kjarna, og færir hana upp á yfirborðið. Borun hófst 18. apríl 2026 og lauk 29. ágúst 2026.
Kjarnarnir voru settir í merkta kjarnakassa, skráðir og lýstir af jarðfræðingum. Í holunum var vatnsleiðni bergsins mæld með lektarprófunum (Lugeon-prófum) með reglulegu millibili. Efla og Völuberg sáu sameiginlega um jarðfræðiþjónustu og eftirlit, og Vegagerðin tók þátt í rannsóknunum.
Heildardýpi
Alls voru boraðir 525,8 metrar í tveimur kjarnaholum.
| Hola | Staðsetning | Kjarnataka hófst | Borun lauk | Dýpi (m) |
|---|---|---|---|---|
| EG-01 | Eiðið, Heimaey | 18. apríl 2026 | 5. júní 2026 | 234,3 |
| EG-02 | Landeyjasandur | 19. júní 2026 | 29. ágúst 2026 | 291,5 |
| Alls | 525,8 |
Hverjir komu að verkinu?
- Verkkaupi og verkefnisstjórn: Eyjagöng ehf.
- Borverktaki: Ræktunarsamband Flóa og Skeiða
- Jarðfræðiþjónusta og eftirlit: Efla hf. og Völuberg ehf.
- Þátttaka í rannsóknunum: Vegagerðin
Helstu niðurstöður og næstu skref
Í báðum holum liggur móbergsmyndun ofan á mun þéttara setbergi, eins og lagt var upp með. Í EG-02 á Landeyjasandi reyndist setbergið þétt og vatnshelt (0 Lugeon) undir um 165 m dýpi, sem dregur verulega úr áhættu við gangagerðina. Í EG-01 á Heimaey er móbergið vel vatnsgengt niður á um 130 m en þar fyrir neðan tekur við basalt. Eivind Grøv, einn helsti sérfræðingur heims í neðansjávargöngum og ráðgjafi félagsins um hönnun ganga, skoðaði kjarnana í september og taldi þá mun betri en hann hafði búist við.
Næst skila Efla og Völuberg heildstæðri jarðfræðiskýrslu þar sem báðar holurnar eru lagðar til grundvallar, kjarnarnir fara í rannsóknarstofuprófanir, síðan munu bæði Efla og Völuberg annars vegar og Norconsult hins vegar vinna sjálfstæð fýsileika- og kostnaðarmöt, sem eru væntanlegt undir lok árs 2026.
