Eyjagöng ehf. stofnað
Í dag 22. nóvember var félagið Eyjagöng stofnað.
Í dag 22. nóvember var félagið Eyjagöng stofnað.
Eyjagöng ehf. hafa gengið frá samningi við norska ráðgjafafyrirtækið Norconsult um að vinna heildstætt kostnaðar- og fýsileikamat á gerð neðansjávarganga milli lands og Eyja. Verkefnið er mikilvægur áfangi í að kortleggja tæknilegar forsendur samgöngubótar sem getur tryggt heilsárs vegtengingu meginlandsins við Vestmannaeyjar. Norconsult býr yfir víðtækri reynslu af hönnun og mati á flóknum neðansjávargöngum meðal annars í…
Vestmannaeyjum 19. mars 2026 Eyjagöng ehf. hafa náð mikilvægum áfanga í vegferð sinni við að rannsaka fýsileika þess að koma á fastri vegtengingu á milli lands og Eyja. Gengið hefur verið frá samningi við Ræktunarsamband Flóa og Skeiða um framkvæmd kjarnaborana sem munu veita nauðsynlega innsýn í jarðlög og undirstöður á fyrirhugaðri leið. Áhersla á vandaða gagnaöflun…
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri og Haraldur Pálsson framkvæmdastjóri Eyjaganga ehf. undirrituðu samning um 30 m.kr hlutafé sem Vestmannaeyjabær hefur samþykkt að setja inn í félagið Eyjagöng ehf. sem hefur það að markmiði að fjármagna grunnrannsóknir á jarðlögum milli lands og Eyja vegna jarðgangagerðar.Er þetta stórt skref og verður spennandi að fylgjast með framvindunni. Félagið mun halda…
Eyjagöng ehf. tilkynna að félagið hafi gert samstarfssamning við prófessor Eivind Grøv, einn fremsta sérfræðing heims á sviði neðansjávargangagerðar. Grøv mun gegna hlutverki tæknilegs ráðgjafa félagsins við undirbúning og hönnun fyrirhugaðra neðansjávarganga milli meginlands Íslands og Vestmannaeyja. Eivind Grøv var aðalvísindamaður hjá norsku rannsóknarstofnuninni SINTEF og fyrrverandi aðjúnkt við NTNU-háskólann í Þrándheimi. Hann hefur yfir 40 ára reynslu af jarðgangagerð…
Vestmannaeyjum 23. mars 2026 Undirbúningur að gerð jarðganga á milli lands og Eyja hefur tekið stórt skref fram á við með innkomu nýrra, öflugra hluthafa. Landsbankinn og N1 hafa nú meðal annarra bæst í hóp þeirra sem styðja verkefnið, en allir nýir hluthafar hafa þegar greitt fyrir hlut sinn í félaginu. Sagan úr Hvalfirði endurtekur sig Aðkoma Landsbankans…
VESTMANNAEYJUM, 26. janúar 2025 Félagið Eyjagöng ehf., sem undirbýr gerð jarðganga á milli lands og Eyja, hefur tryggt sér stóran hluta af 200 milljóna króna fjármögnunarmarkmiði sínu. Ólíkt mörgum öðrum þróunarverkefnum, er hér ekki einungis um loforð að ræða, því lykilfjárfestar hafa þegar gengið frá greiðslu á hlutafé sínu. Félagið var stofnað fyrir 2 mánuðum og…