FRÉTTATILKYNNING: Innviðasjóður í eigu lífeyrissjóða, stéttarfélög og stærstu fyrirtæki landsins sameinast um Eyjagöng

VESTMANNAEYJAR, 6. maí. Enn stækkar hópur þeirra öflugu bakhjarla sem standa að rannsóknarfasa Eyjaganga. Eimskip, Olís, stéttarfélögin Drífandi, Jötunn og Verðandi, innviðasjóðurinn Innviðir fjárfestingar II slhf. og fjárfestingarfélagið MK 4 ehf. hafa nú bæst í hóp hluthafa og þegar greitt fyrir hlut sinn.

Innviðir fjárfestingar: Fagfjárfestar styðja við undirbúninginn

Innkoma Innviða fjárfestinga II slhf. færir verkefninu mikla vigt. Sjóðnum sem er stýrt af Summu og fjármagnaður nær eingöngu af íslenskum lífeyrissjóðum, sérhæfir sig í uppbyggingu á hagrænum og félagslegum innviðum. Sjóðurinn hefur áður komið að stórum verkefnum á borð við kaup á fjarskiptafyrirtækinu Mílu, orkufyrirtækinu Reykjavík Geothermal og fjárfestingu í hjúkrunarheimilum. Aðkoma sjóðsins að Eyjagöngum er skýr gæðastimpill á undirbúningsferlið, enda búa stjórnendur sjóðsins yfir yfirgripsmikilli reynslu af mati á þjóðhagslega mikilvægum innviðaverkefnum.

Eimskip: Vestmannaeyjar tengdar við þjóðvegakerfið

Aðkoma Eimskips markar tímamót, en fyrirtækið er burðarás í flutningum á Íslandi. Frá sjónarhóli Eimskips snúast Eyjagöng um að loka rofi í flutningskerfi landsins. Með jarðgöngum yrðu Vestmannaeyjar í raun hluti af þjóðvegakerfinu og flutningsleiðin yrði stöðugri og öruggari. Sýn Eimskips er skýr: Að auka hagkvæmni í flutningum og styrkja samkeppnisstöðu íslensks útflutnings með því að kanna til þrautar þann möguleika að gera flutningsleiðina til Eyja fyrirsjáanlegri. Í Vestmannaeyjum er auk þess öflug höfn sem væri hægt að nýta enn betur fyrir inn- og útflutning á stærra markaðssvæði með tilkomu jarðganga.

Olís: Tryggari lífæð til Eyja

Þátttaka Olís styrkir verkefnið hvað varðar innviði og afhendingaröryggi orku. Fyrir Olís er mikilvægt að skoða hvernig jarðgöng geta breytt flutningsleiðum fyrir eldsneyti og aðrar nauðsynjar. Með landtengingu mætti draga úr flóknum og veðurháðum sjóflutningum á orkugjöfum, sem eykur öryggi og hagkvæmni í þjónustu við útgerð, fyrirtæki og íbúa í Eyjum. 

Brautryðjendur og grasrót. Aðkoma Drífanda stéttarfélags, Skipstjóra og stýrimannafélags Verðandi og Jötunnar sjómannafélags, undirstrikar svo mikilvægi þess að rannsaka þessa samgöngubót fyrir launafólk og lífskjör í Eyjum. Þá er þátttaka MK 4 ehf., sem er í eigu Magnúsar Kristinssonar og fjölskyldu, sérstaklega ánægjuleg. Magnús hefur um langa hríð verið ötull talsmaður þess að láta á það reyna hvort jarðgöng séu fýsilegur kostur.

Áhersla á raunsæi og faglegar rannsóknir. Líkt og áður hefur komið fram, eru Eyjagöng ehf. nú á fyrsta stigi rannsókna, þar sem meginmarkmiðið er að safna gögnum og rannsaka fýsileika verkefnisins. Þótt hluthafahópurinn sé nú skipaður mörgum af öflugustu fyrirtækjum landsins er lögð áhersla á hógværð í nálgun. Fjármagnið sem nú hefur verið tryggt verður notað til að svara þeim tæknilegu og fjárhagslegu spurningum sem þarf til að leggja mat á framhaldið.

Haraldur Pálsson, framkvæmdastjóri hjá Eyjagöngum ehf.:

„Það er mikill styrkur að fá fleiri stórfyrirtæki eins og Eimskip og Olís inn í þetta rannsóknarferli og ekki síður mikil viðurkenning að stéttarfélög hafi óskað eftir því að taka þátt í þessu með okkur. Þá er mjög jákvætt að jafn sterkur sjóður og Innviðir fjárfestingar II slhf. sé að styðja við mikilvægt innviðaverkefni sem þetta. Við höfum nú safnað nægu fjármagni til ljúka fyrsta fasa rannsóknarinnar og látum við því staðar numið hér í bili.“

Similar Posts