Fréttatilkynning: Hlutafjáraukning Eyjaganga langt komin. Íslandsbanki og lykilaðilar hafa þegar greitt hlutafé
VESTMANNAEYJUM, 26. janúar 2025
Félagið Eyjagöng ehf., sem undirbýr gerð jarðganga á milli lands og Eyja, hefur tryggt sér stóran hluta af 200 milljóna króna fjármögnunarmarkmiði sínu. Ólíkt mörgum öðrum þróunarverkefnum, er hér ekki einungis um loforð að ræða, því lykilfjárfestar hafa þegar gengið frá greiðslu á hlutafé sínu. Félagið var stofnað fyrir 2 mánuðum og mun hefja framkvæmdir í mars.
Í hópi þeirra sem þegar hafa gerst hluthafar er Íslandsbanki, en aðkoma bankans er talin mikilvægur gæðastimpill á verkefnið. Þá hafa burðarásar í atvinnulífi Vestmannaeyja, Ísfélag og Vinnslustöðin, þegar greitt fyrir sína hlutdeild, ásamt Vestmannaeyjabæ og Rangárþingi eystra. Aðaleigendur og stofnendur Laxeyjar í gegnum Sion ehf. og DVG Fasteignafélag eru einnig komnir í hluthafahópinn.
Árni Sigfússon formaður Eyjaganga ehf.:
„Það sendir sterkt merki inn í viðskiptalífið að þessir öflugu aðilar séu ekki bara að styðja okkur í orði, heldur séu þeir þegar búnir að leggja fram fjármagnið. Með Íslandsbanka og helstu atvinnufyrirtæki svæðisins í hluthafahópnum er ljóst að trúin á verkefnið er mikil. Við erum nú að klára viðræður við væntanlega fjárfesta í þessari lotu.“
Stefnt er að því að ljúka hlutafjáraukningunni á næstu vikum.
