Undirbúningur fyrir næstu borholu er hafinn

Góður gangur er í rannsóknum Eyjaganga. Nú hefur mikilvægum áfanga verið náð, en kjaraborun við holu EG-01 á Eiðinu hér í Vestmannaeyjum er formlega lokið!

Þessi áfangi færir okkur dýrmæt gögn og mikilvæga þekkingu á jarðlögunum sem munu nýtast beint í áframhaldandi undirbúning og hönnun ganganna.

Næsti áfangastaður: Landeyjasandur

Kjarnaborinn Karl Prins er farinn frá Vestmannaeyjum og munu starfsmenn Ræktunarsambands Flóa og Skeiða koma honum fyrir á nýjum stað í Landeyjasandi þar sem rannsóknir munu halda áfram af fullum krafti.

Benedikt Óskar Steingrímsson, starfsmaður Völubergs, sendi okkur meðfylgjandi mynd sem sýnir nákvæma staðsetningu á næstu borholu, EG-02, sem staðsett er þétt upp við ströndina á Landeyjasandi.

Framundan eru spennandi tímar og við fylgjumst spennt með mælingum á Landeyjasandi!

Framvindan sýnir svo ekki verður um villst að hlutirnir gerast hratt þegar samhentir aðilar leggjast á eitt. Við flytjum ykkur áfram fréttir jafnóðum og borinn fer að snúast á nýjum slóðum!

Similar Posts