Borinn er laus
Við greinum frá því með ánægju kjarnaborinn er laus á nýjan leik. Þrautseigja og réttur tækjabúnaður skilaði tilætluðum árangri.
Eftir krefjandi daga og mikla vinnu við að losa kjarnaborinn, sem sat fastur í afar hörðu bergi, komu loksins þær fréttir sem allir biðu eftir: Borinn er laus! Það var öflug loftpressa sem reyndist vera lykillinn að lausninni í morgun og tókst henni að vinna á mótstöðunni.
Höldum ótrauð áfram
Þetta eru frábær tíðindi fyrir verkefnið og sýnir að með samtilltu átaki og réttum verkfærum er hægt að sigrast á flestum hindrunum. Ekki er eftir neinu að bíða með framhaldið. Strax í lok dagsins í dag verður steypt í holuna.
Borun hefst að nýju á morgun
Samkvæmt áætlun þarf steypan að fá um 20 klukkustundir til að harðna og setjast. Ef allt gengur eftir verður byrjað að bora af fullum krafti í sömu holu strax á morgun, laugardag, seinnipartinn.
Þessi áfangi er mikið fagnaðarefni og gefur liðinu góðan byr í seglin fyrir áframhaldandi vegferð.

