Allt klárt fyrir kjarnaborun á Landeyjasandi

Allur undirbúningur er nú á lokastigi og allt klárt til að hefja fóðrun og kjarnaborun á rannsóknarholunni EG-02 á Landeyjasandi. Verkefnið er einn af lykilþáttunum í viðamiklum jarðfræðirannsóknum sem munu skerða úr um fýsileika þess að gera jarðgöng á milli lands og Vestmannaeyja.

Vegna hinna sérstöku aðstæðna á Landeyjasandi, þar sem efstu lög jarðvegsins samanstanda af lausum sandi, verður byrjað á því að setja niður um 40 metra langa fóðrun. Hlutverk hennar er að tryggja fyllsta stöðugleika borholunnar áður en haldið verður dýpra niður í fastara berg.

Borað 300 metra niður í jarðlögin

Þegar fóðruninni lýkur verður kjarnaborinn settur í gang, en áætlað er að bora holuna niður á allt að 300 metra dýpi. Markmiðið er að ná upp samfelldum kjarnasýnum sem munu veita vísindamönnum og verkfræðingum nákvæmar upplýsingar um gerð og styrk berglaganna undir sandinum.

Slík gagnaöflun er algjör grundvöllur þess að hægt sé að hanna örugg jarðgöng og meta heildarkostnað verkefnisins.

„Það er tilkomumikið að sjá borinn Karl Prins standa í miðri sandfjörunni með eyjasýnina í bakgrunn.“ segir Haraldur Pálsson framkvæmdastjóri. „Með því að bora niður á 300 metra dýpi fáum við áður óþekkt gögn um jarðlögin á þessu svæði, sem færir okkur nær raunhæfu mati á jarðgöngum til Eyja.“

Reiknað er með að gangaopið verði ofar í landinu en líkt og með kjarnaborunina i Vestmannaeyjum, er talið mikilvægt að ná kjörnum þar sem sleppir landi til að ná sem bestu sýnum á gangaleiðinni.

Mynd af borstæði Eyjaganga í Landeyjum.

Similar Posts

  • Kjarnaborun gengur vel

    Kjarnaborun hefur gengið nokkuð vel og er borinn kominn niður á 63 metra. Búið er að steypa einu sinni í holuna og hefur hún verið lektarprófuð tvívegis. Á meðfylgjandi mynd má sjá Benedikt Óskar Steingrímsson jarðfræðing Völubergs ásamt Árna Sigfússyni stjórnarformanni Eyjaganga, ræða ný kjarnasýni á borstæði félagsins við Klifið. Haraldur Pálsson framkvæmdastjóri, Gylfi Sigfússon…

  • Fyrstu kjarnarnir úr EG-02 komnir á yfirborðið

    Söguleg stund var á Landeyjasandi í dag þegar fyrstu kjarnarnir komu upp úr rannsóknarholunni EG-02. Boranir á Landeyjasandi standa nú yfir sem hluti af viðamiklum undirbúningsrannsóknum fyrir möguleg Eyjagöng. Í dag náðist mikilvægur áfangi þegar borinn náði niður í fast berg og fyrstu kjarnasýnin litu dagsins ljós. Traust undirstaða á 41 metra dýpi Búið er…

  • Fyrstu kjarnarnir komnir upp

    Fyrstu sýnin fóru að sjást eftir hádegi í gær, mánudaginn 20. apríl. Byrjað var á því að fóðra holuna niður á 15 metra og var fyrsta sýnið því frá 15. meter.Farið verður í að lektarprufa holuna eftir hádegi í dag. Eftirlitsmaður á borstað er Benedikt Óskar Steingrímsson fyrir hönd fyrirtækisins Völubergs og fara allar aðgerðir…

  • Borinn er laus

    Við greinum frá því með ánægju að kjarnaborinn er laus á nýjan leik. Þrautseigja og réttur tækjabúnaður skilaði tilætluðum árangri. Eftir krefjandi daga og mikla vinnu við að losa kjarnaborinn, sem sat fastur í afar hörðu bergi, komu loksins þær fréttir sem allir biðu eftir: Borinn er laus! Það var öflug loftpressa sem reyndist vera…