Rannsóknarhola EG-02 komin í 180 metra dýpi á Landeyjasandi

Borun rannsóknarholunnar EG-02 á Landeyjasandi náði 180,5 metra dýpi í vikunni. Framkvæmdin er liður í gagnaöflun Eyjaganga ehf. við kortlagningu á jarðlögum meginlandsmegin.

Ræktunarsamband Flóa og Skeiða heldur utan um sjálfa borunina, en verkfræðistofan EFLA og jarðfræðistofan Völuberg sjá um eftirlit, faglega umsjón og rannsóknarráðgjöf vegna verkefnisins. Í upphafi var holan fóðruð niður á 41 metra dýpi til að styðja við laus yfirborðslög, en upp frá því hefur verið borað í fastan berggrunn.

Sýni úr boruninni verða send í greiningu þar sem mældur verður bergstyrkur, sprunguþéttleiki og lekaeiginleikar. Gögnin munu síðan nýtast ásamt niðurstöðum úr borholunni EG-01 í Vestmannaeyjum og endurvarpsmælingum úr Eyjasundi við að vinna heildstætt jarðfræðilíkan af svæðinu. Áætlað er að fýsileikamat jarðganga liggi fyrir í lok árs.

Stefnt er að því að halda borun áfram niður á um 300 metra dýpi.

Karl Prins í Landeyjasandi í Rangárþingi Eystra.

Similar Posts

  • Allt klárt fyrir kjarnaborun á Landeyjasandi

    Allur undirbúningur er nú á lokastigi og allt klárt til að hefja fóðrun og kjarnaborun á rannsóknarholunni EG-02 á Landeyjasandi. Verkefnið er einn af lykilþáttunum í viðamiklum jarðfræðirannsóknum sem munu skerða úr um fýsileika þess að gera jarðgöng á milli lands og Vestmannaeyja. Vegna hinna sérstöku aðstæðna á Landeyjasandi, þar sem efstu lög jarðvegsins samanstanda…

  • Fyrstu kjarnarnir úr EG-02 komnir á yfirborðið

    Söguleg stund var á Landeyjasandi í dag þegar fyrstu kjarnarnir komu upp úr rannsóknarholunni EG-02. Boranir á Landeyjasandi standa nú yfir sem hluti af viðamiklum undirbúningsrannsóknum fyrir möguleg Eyjagöng. Í dag náðist mikilvægur áfangi þegar borinn náði niður í fast berg og fyrstu kjarnasýnin litu dagsins ljós. Traust undirstaða á 41 metra dýpi Búið er…

  • Borinn er laus

    Við greinum frá því með ánægju að kjarnaborinn er laus á nýjan leik. Þrautseigja og réttur tækjabúnaður skilaði tilætluðum árangri. Eftir krefjandi daga og mikla vinnu við að losa kjarnaborinn, sem sat fastur í afar hörðu bergi, komu loksins þær fréttir sem allir biðu eftir: Borinn er laus! Það var öflug loftpressa sem reyndist vera…

  • Karl Prins kominn til Eyja

    Mikilvægur áfangi í undirbúningi jarðganga á milli lands og Eyja er að hefjast, en kjarnaborinn Karl Prins er nú kominn til Vestmannaeyja.Íbúar og vegfarendur hafa nýverið tekið eftir komu þessa öfluga tækis. Borinn mun verða notaður til að sækja sýni úr jarðlögum sem veita munu ómetanlegar upplýsingar um berggæði og jarðfræði á fyrirhugaðri gangaleið. Borað…

  • Hafsbotnsmælingar hefjast í næstu viku

    Hafsbotnsmælingar hefjast í næstu viku Í næstu viku munu Eyjagöng hefja hljóðendurvarpsmælingar í Eyjasundi í samstarfi við Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) og Landhelgisgæslu Íslands. Mælingarnar eru liður í undirbúningi fyrir mögulega vegtengingu við Heimaey og markar þetta upphaf þriðja þrepsins í þrepaskiptum rannsóknum á svæðinu. Áætlað er að mælingarnar hefjist þann 1. júlí næstkomandi og muni þær standa…