Eivind Grøv kynnti sér aðstæður í Vestmannaeyjum
Eivind Grøv, tæknilegur ráðgjafi Eyjaganga, var hér á landi í liðinni viku og heimsótti meðal annars Vestmannaeyjar þar sem hann kynnti sér aðstæður á vettvangi.
Í heimsókninni fór Grøv meðal annars yfir mögulega legu ganganna, skoðaði svæðið umhverfis rannsóknarholu EG-01 á Heimaey og kynnti sér staðhætti og aðstæður til framkvæmda. Þá fór hann yfir kjarnasýni úr rannsóknarholunum tveimur, EG-01 á Heimaey og EG-02 á Landeyjasandi, ásamt fulltrúum Eyjaganga og ráðgjöfum verkefnisins.
Kjarnasýnin, sem aflað var í vettvangsrannsóknum á árinu, mynda ásamt hafsbotnsmælingum grunninn að jarðfræðilegri greiningu verkefnisins og eru meðal mikilvægustu gagna við mat á fýsileika og kostnaði við gangagerðina.
„Það skiptir miklu máli fyrir ráðgjafa að standa sjálfur á staðnum og sjá bergið með eigin augum, ekki aðeins á myndum og í skýrslum. Gagnaöflun Eyjaganga hefur verið vönduð og verkefnið er á réttri leið í undirbúningi sínum,“ segir Eivind Grøv.

Eivind Grøv er meðal reyndustu sérfræðinga heims í neðansjávargöngum og hefur yfir fjögurra áratuga reynslu af jarðgangagerð og bergtækni. Hann hefur starfað sem aðalvísindamaður hjá norsku rannsóknastofnuninni SINTEF og prófessor við NTNU í Þrándheimi, verið formaður norska jarðgangafélagsins og varaforseti Alþjóðasamtaka um jarðgangagerð (ITA-AITES). Hann kom að Hvalfjarðargöngum á tíunda áratugnum og hefur verið ráðgjafi við öll neðansjávargöng Færeyja. Grøv gekk til liðs við Eyjagöng í maí síðastliðnum.
Vettvangsrannsóknum Eyjaganga lauk í ágúst og stendur nú yfir úrvinnsla gagna sem nýtast við fýsileika- og kostnaðarmat verkefnisins.

