Eyjagöng eins árs

Í nóvember 2025 var félagið Eyjagöng ehf. stofnað með fyrsta markmið að draga úr óvissu við framkvæmdakostnað vegtengingar Vestmannaeyja við fastalandið. Síðar með framkvæmd 18 km langra jarðganga frá Heimaey að Landeyjasandi. Nú, ári síðar, er verkefnið komið lengra en flestir þorðu að vona.

Á fyrsta starfsárinu voru boraðar tvær rannsóknarholur. Á Heimaey var borað niður á 230 metra dýpi og á Landeyjasandi staðfesti borholan EG-02 þétt setberg undir um 165 metra dýpi. Það eru mikilvægar niðurstöður sem draga verulega úr áhættu við gerð gangnanna. Hafbotnsmælingar hafa farið fram og nú er unnið úr niðurstöðunum. Samhliða því er unnið að greiningum á arðsemi og fjármögnun verkefnisins.

Í tilefni dagsins birtum við stutt myndband sem rekur sögu fyrsta ársins.

Ekkert af þessu hefði orðið að veruleika án fólksins og fyrirtækjanna sem hafa staðið með okkur. Við þökkum hluthöfum okkar innilega fyrir traustið og stuðninginn frá fyrsta degi. Jafnframt þökkum við samstarfsaðilum okkar, Eflu, Völubergi, ÍSOR, Landhelgisgæslu Íslands, Deloitte, Norconsult, Landsbankanum og Íslandsbanka, og öllum þeim sérfræðingum sem hafa lagt verkefninu lið.

Annað starfsárið er hafið. Fram undan eru frekari rannsóknir, úrvinnsla gagna og ákvarðanir um næstu skref.

Myndefni: Halldór B. Halldórsson og Haraldur Pálsson
Myndvinnsla og klipping: Verbúð 53, Sigfús Árnason

Similar Posts