Kjarnaborun gengur vel
Kjarnaborun hefur gengið nokkuð vel og er borinn kominn niður á 63 metra.
Búið er að steypa einu sinni í holuna og hefur hún verið lektarprófuð tvívegis.
Á meðfylgjandi mynd má sjá Benedikt Óskar Steingrímsson jarðfræðing Völubergs ásamt Árna Sigfússyni stjórnarformanni Eyjaganga, ræða ný kjarnasýni á borstæði félagsins við Klifið.


Haraldur Pálsson framkvæmdastjóri, Gylfi Sigfússon stjórnarmaður, Árni Sigfússon stjórnarformaður, Benedikt Óskar Steingrímsson jarðfræðingur Völubergs og Ívar Atlason stjórnarmaður.
