Krefjandi aðstæður við borun

Borunarvinnan við Eyjagöng mætti ákveðnum áskorunum um síðustu helgi þegar kjarnaborinn festist í hörðu bergi. Unnið er að lausnum og viðbótartæki eru komin til Eyja.

Seinnipart laugardagsins 25. apríl kom upp sú staða að kjarnaborinn festist í holunni eftir að hafa unnið sig í gegnum mjög hart berg. Borinn situr fastur á um 66 metra dýpi.

Unnið er að losun

Til að bregðast við þessu var frekari tækjabúnaður fluttur til Eyja síðastliðinn þriðjudag til að styðja við losunaraðgerðir.

Enn er unnið hörðum höndum að því að ná bornum upp og ríkir von um að þær tilraunir skili árangri innan skamms.

Horft til næstu skrefa

Ef ekki tekst að losa borinn með fyrirliggjandi tækjum, er áætlun B þegar í skoðun. Hún felur í sér að byrjað verði á nýrri holu þar sem beitt verður loftborun niður á sambærilegt dýpi til að tryggja að framvinda verksins stöðvist ekki.

„Þetta er hluti af vegferðinni og í raun ekkert óeðlilegt að lenda í hremmingum sem þessum.“ segja starfsmenn Ræktunarsambandsins. „Verkefnin eru til þess að leysa þau og við höldum ótrauðir áfram.“

Við munum flytja frekari fréttir af gangi mála hér á síðunni og vonum það besta!

Similar Posts