Hafbotnsmælingar gengu vel

Árangursríkum hljóðendurvarpsmælingum í tengslum við undirbúning Eyjaganga er nú lokið. Á sjö mælingadögum voru alls mældir 282 kílómetrar (152 sjómílur), en um var að ræða þriðja rannsóknarstig verkefnisins.

Leiðangurinn í heild sinni þykir hafa heppnast vel, sérstaklega þegar tekið er tillit til þess að aðstæður á sjó voru oft krefjandi. Mælitækin sem notuð voru eru afar næm fyrir ölduhæð og þola aðeins öldu sem er undir 1,5 metrum, sem gerði kröfur um nákvæma skipulagningu og góða nýtingu á mælingagluggum.

Tækin flutt aftur til ÍSOR

Síðasti mælingadagur verkefnisins var mánudaginn 20. júlí og var Geo-Sparkerinn tekinn úr Baldri í morgun, skipið heldur leið sinnar norður í Þistilfjörð síðar í dag.

Mælitækin eru í eigu Íslenskra orkurannsókna (ÍSOR) og eru þau á leið aftur í höfuðstöðvar stofnunarinnar í Kópavogi. Þar munu sérfræðingar ÍSOR sjá um að greina og túlka gögnin næstu mánuðina en gríðarlega magn af gögnum sem safnaðist í leiðangrinum.

Þessar mælingar munu veita dýrmæta innsýn í aðstæður á hafbotninum fyrir næstu skref verkefnisins.

Eyjagöng vilja koma á framfæri kærum þökkum fyrir snör viðbrögð ÍSOR og Landhelgisgæslunnar við beiðni félagsins um að taka þetta verkefni að sér með skömmum fyrirvara. Félagið taldi mikilvægt að mælingarnar færu fram í júlí fremur en í ágúst eins og áformað var eftir tafir á afhendingu búnaðarins.
Einnig viljum við þakka starfsmönnum GEO Marine Survey Systems fyrir þeirra vinnu. Við erum mjög ánægð með þau faglegu vinnubrögð sem unnin voru í þessu verkefni.

Frekar upplýsingar um þennan hluta verkefnisins má finna hér.

Siglingalínur Baldurs síðustu 7 sólarhringa. Heimild: Marinetraffic.

Similar Posts