-
Framgangur við rannsóknarholu EG-01: Borun komin á beinu brautina
Rannsóknarholan EG-01 á Eiðinu í Vestmannaeyjum hefur nú náð 101,3 metra dýpi. Þrátt fyrir óvæntar tafir síðustu daga, er verkefnið nú komið á góða siglingu á ný. Undirbúningur og rannsóknir fyrir Eyjagöng eru í fullum gangi og rannsóknarholan EG-01 er lykilatriði í því að afla mikilvægra jarðfræðiupplýsinga. Tafir vegna samgönguvanda Í síðustu viku kom upp…
-
FRÉTTATILKYNNING: Innviðasjóður í eigu lífeyrissjóða, stéttarfélög og stærstu fyrirtæki landsins sameinast um Eyjagöng
VESTMANNAEYJAR, 6. maí. Enn stækkar hópur þeirra öflugu bakhjarla sem standa að rannsóknarfasa Eyjaganga. Eimskip, Olís, stéttarfélögin Drífandi, Jötunn og Verðandi, innviðasjóðurinn Innviðir fjárfestingar II slhf. og fjárfestingarfélagið MK 4 ehf. hafa nú bæst í hóp hluthafa og þegar greitt fyrir hlut sinn. Innviðir fjárfestingar: Fagfjárfestar styðja við undirbúninginn Innkoma Innviða fjárfestinga II slhf. færir verkefninu mikla…
-
Borinn er laus
Við greinum frá því með ánægju að kjarnaborinn er laus á nýjan leik. Þrautseigja og réttur tækjabúnaður skilaði tilætluðum árangri. Eftir krefjandi daga og mikla vinnu við að losa kjarnaborinn, sem sat fastur í afar hörðu bergi, komu loksins þær fréttir sem allir biðu eftir: Borinn er laus! Það var öflug loftpressa sem reyndist vera…
-
Krefjandi aðstæður við borun
Borunarvinnan við Eyjagöng mætti ákveðnum áskorunum um síðustu helgi þegar kjarnaborinn festist í hörðu bergi. Unnið er að lausnum og viðbótartæki eru komin til Eyja. Seinnipart laugardagsins 25. apríl kom upp sú staða að kjarnaborinn festist í holunni eftir að hafa unnið sig í gegnum mjög hart berg. Borinn situr fastur á um 66 metra dýpi….
-
Kjarnaborun gengur vel
Kjarnaborun hefur gengið nokkuð vel og er borinn kominn niður á 63 metra. Búið er að steypa einu sinni í holuna og hefur hún verið lektarprófuð tvívegis. Á meðfylgjandi mynd má sjá Benedikt Óskar Steingrímsson jarðfræðing Völubergs ásamt Árna Sigfússyni stjórnarformanni Eyjaganga, ræða ný kjarnasýni á borstæði félagsins við Klifið. Haraldur Pálsson framkvæmdastjóri, Gylfi Sigfússon…
-
Fyrstu kjarnarnir komnir upp
Fyrstu sýnin fóru að sjást eftir hádegi í gær, mánudaginn 20. apríl. Byrjað var á því að fóðra holuna niður á 15 metra og var fyrsta sýnið því frá 15. meter.Farið verður í að lektarprufa holuna eftir hádegi í dag. Eftirlitsmaður á borstað er Benedikt Óskar Steingrímsson fyrir hönd fyrirtækisins Völubergs og fara allar aðgerðir…
-
Kjarnaborun hafin
Kjarnaborun hófst í Vestmannaeyjum laugardaginn 18. apríl og er reiknað með að hún standi yfir í heilan mánuð. Að henni lokinni verður búnaðurinn fluttur yfir í Landeyjasand og hafist handa þar við kjarnaborun.
-
Eyjagöng í kvöldfréttum RÚV
Fjallað var um Eyjagöng í kvöldfréttum RÚV föstudagskvöldið 17. apríl 2026. Þar var meðal annars sýnt frá því þegar kjarnaborinn kom til Vestmannaeyja með Herjólfi daginn áður.
-
Karl Prins kominn til Eyja
Mikilvægur áfangi í undirbúningi jarðganga á milli lands og Eyja er að hefjast, en kjarnaborinn Karl Prins er nú kominn til Vestmannaeyja.Íbúar og vegfarendur hafa nýverið tekið eftir komu þessa öfluga tækis. Borinn mun verða notaður til að sækja sýni úr jarðlögum sem veita munu ómetanlegar upplýsingar um berggæði og jarðfræði á fyrirhugaðri gangaleið. Borað…
-
Ármann Höskuldsson um Eyjagöng
Það er alls ekki fráleitt að rannsaka möguleikann á göngum milli lands og Vestmannaeyja, að mati Ármanns Höskuldssonar, eldfjallafræðings og rannsóknarprófessors við Háskóla Íslands. Hann segir tæknilega mögulegt að ráðast í slíka framkvæmd, þótt nauðsynlegt sé að kanna jarðlög og kostnað mun betur áður en lengra er haldið. Umræða um Vestmannaeyjagöng hefur tekið við sér…
-
FRÉTTATILKYNNING: Landsbankinn og N1 á meðal þeirra sem bætast í ört stækkandi hóp hluthafa Eyjaganga
Vestmannaeyjum 23. mars 2026 Undirbúningur að gerð jarðganga á milli lands og Eyja hefur tekið stórt skref fram á við með innkomu nýrra, öflugra hluthafa. Landsbankinn og N1 hafa nú meðal annarra bæst í hóp þeirra sem styðja verkefnið, en allir nýir hluthafar hafa þegar greitt fyrir hlut sinn í félaginu. Sagan úr Hvalfirði endurtekur sig Aðkoma Landsbankans…
-
Fréttatilkynning: Mikilvægar rannsóknarboranir hefjast vegna könnunar á vegtengingu við Vestmannaeyjar
Vestmannaeyjum 19. mars 2026 Eyjagöng ehf. hafa náð mikilvægum áfanga í vegferð sinni við að rannsaka fýsileika þess að koma á fastri vegtengingu á milli lands og Eyja. Gengið hefur verið frá samningi við Ræktunarsamband Flóa og Skeiða um framkvæmd kjarnaborana sem munu veita nauðsynlega innsýn í jarðlög og undirstöður á fyrirhugaðri leið. Áhersla á vandaða gagnaöflun…
-
Það verða göng til Eyja segir Eyjólfur
Eyjólfur Ármannsson sagði í Bítinu á Bylgjunni í dag 3. mars 2026 að í framtíðinni verða göng til Vestmannaeyja, hann er mjög ánægður með tilvist Eyjaganga ehf.
-
Efla og Völuberg semja við Eyjagöng
Eyjagöng hafa náð mikilvægum áfanga í undirbúningsferli jarðganga á milli lands og Eyja með því að ganga til samninga við verkfræðistofuna Eflu og verkfræði- og jarðfræðistofuna Völuberg. Fyrirtækin munu sameiginlega annast jarðfræðiþjónustu vegna kjarnaborana og fýsileikamats verkefnisins. Ákvörðunin um samstarfið var tekin eftir vandað valferli og í nánu samráði við Vegagerðina. Það var samdóma álit…
-
Fréttatilkynning: Hlutafjáraukning Eyjaganga langt komin. Íslandsbanki og lykilaðilar hafa þegar greitt hlutafé
VESTMANNAEYJUM, 26. janúar 2025 Félagið Eyjagöng ehf., sem undirbýr gerð jarðganga á milli lands og Eyja, hefur tryggt sér stóran hluta af 200 milljóna króna fjármögnunarmarkmiði sínu. Ólíkt mörgum öðrum þróunarverkefnum, er hér ekki einungis um loforð að ræða, því lykilfjárfestar hafa þegar gengið frá greiðslu á hlutafé sínu. Félagið var stofnað fyrir 2 mánuðum og…
-
Góður fundur á Hvolsvelli
Eyjagöng stóð fyrir góðum fundi í félagsheimilinu Hvoli Hvolsvelli, þriðjudaginn 20. janúar. Við þökkum öllum fyrir komuna.
-
Vel sóttur fundur í Höllinni
Félagið Eyjagöng ehf. stóð fyrir kynningarfundi í Höllinni Vestmannaeyjum á starfsemi félagsins. Hátt í 200 manns sóttu fundinn.
-
-
Samningur undirritaður við Vestmannaeyjabæ
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri og Haraldur Pálsson framkvæmdastjóri Eyjaganga ehf. undirrituðu samning um 30 m.kr hlutafé sem Vestmannaeyjabær hefur samþykkt að setja inn í félagið Eyjagöng ehf. sem hefur það að markmiði að fjármagna grunnrannsóknir á jarðlögum milli lands og Eyja vegna jarðgangagerðar.Er þetta stórt skref og verður spennandi að fylgjast með framvindunni. Félagið mun halda…
